Í 1. sæti á Billboard
Ég rakst á
bloggfærslu hjá Þorgeiri, framkvæmdastjóra Sinfóníunnar og
Ljótum hálfvita (ég þekki hann ekki - ég bara rataði inn á bloggsíðu hans af
síðu Ylfu Mistar, sem hefur starfað með honum í áhugaleikfélaginu Hugleik, sem Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur sagði mér í óspurðum fréttum úr höfuðstaðnum að væri eina leikfélagið, að atvinnuleikhúsunum meðtöldum, sem gerði nokkuð af viti er tengdist leiklist í henni Reykjavík. Og Ylfu Mist þekki ég ekki heldur - en hún á heima í Bolungavík og þess vegna finnst mér kannski eins og ég þekki hana og auk þess verslum við Gréta oft við svo almennilegan mann sem er giftur föðursystur hennar og spyr okkur iðulega frétta að vestan og getur spjallað þessi ósköp um heimsóknir sínar til Bolungavíkur. Og Árna Björnsson þekki ég ekki heldur - en við höfum einu sinni unnið saman að tónlistarflutningi á kvöldvöku sem tileinkuð var Bellman - sem Árni þekkir betur en flestir Íslendingar).
Jæja, þetta var nú útúrdúr. Í bloggfærslu Þorgeirs þessa var hann að benda á
heimasíðu sem tengir saman dagsetningar og lagið sem var á toppnum á Billboard vinsældarlistanum. Þannig gat ég t.a.m. komsit að því að Billy Preston var á toppnum 1. júlí 1973 með lagið
Will it go around in circles.
Þorgeir spyr lesendur hvort þeir viti hvert þeirra lag sé. Ég er að hugsa um að stela þeirri hugmynd frá honum og biðja ykkur sem nennið að gefa ykkur tíma til að gá að þessu um að láta þess getið hér á athugasemdakerfinu hvaða lag sat á toppi listans daginn sem þið fæddust.