Tilraunavefurinn
fimmtudagur, febrúar 23
 
Nýr gítar. Seldi rafmagnsgítar sem ég hef notað þegar ég leik með Bleki og byttum. Fékk mér nýjan sem hefur miklu meiri möguleika fyrir mig. Þennan gæti ég notað í nánast alla músík sem ég er að taka þátt í að flytja. T.a.m. við að flytja mitt eigið efni.
 
  Fréttir af tónlistarbröltinu
Það er langt síðan ég ritaði hér síðast.
Mér þykir eðlilegt framhald af fréttaflutningi síðan í sumar að bæta því við að í haust og vetur hef ég haldið áfram að kynna plötuna mína með tónleikahaldi. Það hefur samt ekkert verið mikið. Ég lék tónleika á Akureyri, Þingeyri, Ísafirði og Suðureyri þar sem ég kom fram einn og söng lögin við eigin gítarundirleik. Nokkrum sinnum hef ég svo komið fram á tónleikum eða öðrum uppákomum sem aðrir en ég hafa skipulagt. Í desember sl. hélt ég svo tónleika í Félagsheimilinu heima í Bolungavík með hljómsveitinni sem lék líka með mér á útgáfutónleikunum í vor. Foreldrar mínir, stórra og smærri fyrirtækja og einstaklingar fyrir vestan studdu svolítið við þá framkvæmd. Systrablokkin, Völusteinn, Útgerðarfélag Gumma og Ásu, Daði Guðmundsson, Fiskmarkaður Kalla Gunn, Samkaup og Olís, Stuð ehf. og H-prent eru þar á meðal. Þannig að flestir tónleikagestir höfðu boðsmiða. Ég slapp þokkalega frá þessu fjárhagslega. Tapaði samt smá. Tónleikarnir heppnuðust vel. Venni vinur minn var hljóðmaður og tók tónleikana upp. Hann hefur sent mér eitt lagið. Það er fín stemning í því og upptakan ágæt. FJölnir Baldursson tók tónleikana upp á myndband. Ég held að hann hafi bara gert það til að skrásetja menningarsögu Vestfjarða jafnharðan og hún á sér stað. Flott framtak. Kannski ég geti notið góðs af því og eignast þá upptöku. Kanna það síðar. Þá væri gaman að getað sinkað saman hljóðupptöku Venna og myndbandsupptökur Fjölnis úr þremur myndavélum.
Hér er ein klippa frá Fjölni með ófullkominni hljóðupptöku sem hann gerði.
 
Fréttir af mér og fólkinu mínu

Myndin mín
Nafn:
Staðsetning: Akureyri

Bolvíkingur að heiman.

Söfn
08/01/2003 - 09/01/2003 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 07/01/2004 - 08/01/2004 / 08/01/2004 - 09/01/2004 / 09/01/2004 - 10/01/2004 / 10/01/2004 - 11/01/2004 / 11/01/2004 - 12/01/2004 / 12/01/2004 - 01/01/2005 / 01/01/2005 - 02/01/2005 / 02/01/2005 - 03/01/2005 / 03/01/2005 - 04/01/2005 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 05/01/2005 - 06/01/2005 / 06/01/2005 - 07/01/2005 / 07/01/2005 - 08/01/2005 / 08/01/2005 - 09/01/2005 / 09/01/2005 - 10/01/2005 / 10/01/2005 - 11/01/2005 / 11/01/2005 - 12/01/2005 / 12/01/2005 - 01/01/2006 / 01/01/2006 - 02/01/2006 / 02/01/2006 - 03/01/2006 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 04/01/2006 - 05/01/2006 / 05/01/2006 - 06/01/2006 / 06/01/2006 - 07/01/2006 / 07/01/2006 - 08/01/2006 / 08/01/2006 - 09/01/2006 / 09/01/2006 - 10/01/2006 / 10/01/2006 - 11/01/2006 / 11/01/2006 - 12/01/2006 / 12/01/2006 - 01/01/2007 / 01/01/2007 - 02/01/2007 / 02/01/2007 - 03/01/2007 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 04/01/2007 - 05/01/2007 / 05/01/2007 - 06/01/2007 / 06/01/2007 - 07/01/2007 / 07/01/2007 - 08/01/2007 / 08/01/2007 - 09/01/2007 / 09/01/2007 - 10/01/2007 / 10/01/2007 - 11/01/2007 / 11/01/2007 - 12/01/2007 / 12/01/2007 - 01/01/2008 / 01/01/2008 - 02/01/2008 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 04/01/2008 - 05/01/2008 / 05/01/2008 - 06/01/2008 / 06/01/2008 - 07/01/2008 / 07/01/2008 - 08/01/2008 / 08/01/2008 - 09/01/2008 / 09/01/2008 - 10/01/2008 / 10/01/2008 - 11/01/2008 / 11/01/2008 - 12/01/2008 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 / 02/01/2009 - 03/01/2009 / 03/01/2009 - 04/01/2009 / 04/01/2009 - 05/01/2009 / 05/01/2009 - 06/01/2009 / 06/01/2009 - 07/01/2009 / 07/01/2009 - 08/01/2009 / 08/01/2009 - 09/01/2009 / 09/01/2009 - 10/01/2009 / 10/01/2009 - 11/01/2009 / 11/01/2009 - 12/01/2009 / 12/01/2009 - 01/01/2010 / 01/01/2010 - 02/01/2010 / 02/01/2010 - 03/01/2010 / 03/01/2010 - 04/01/2010 / 04/01/2010 - 05/01/2010 / 05/01/2010 - 06/01/2010 / 06/01/2010 - 07/01/2010 / 07/01/2010 - 08/01/2010 / 08/01/2010 - 09/01/2010 / 09/01/2010 - 10/01/2010 / 10/01/2010 - 11/01/2010 / 01/01/2011 - 02/01/2011 / 03/01/2011 - 04/01/2011 / 04/01/2011 - 05/01/2011 / 05/01/2011 - 06/01/2011 / 06/01/2011 - 07/01/2011 / 07/01/2011 - 08/01/2011 / 08/01/2011 - 09/01/2011 / 02/01/2012 - 03/01/2012 / 07/01/2012 - 08/01/2012 / 01/01/2013 - 02/01/2013 / 02/01/2013 - 03/01/2013 / 05/01/2013 - 06/01/2013 / 09/01/2013 - 10/01/2013 / 06/01/2014 - 07/01/2014 / 07/01/2014 - 08/01/2014 / 09/01/2014 - 10/01/2014 / 10/01/2014 - 11/01/2014 / 11/01/2014 - 12/01/2014 / 02/01/2015 - 03/01/2015 / 07/01/2015 - 08/01/2015 / 10/01/2015 - 11/01/2015 / 12/01/2015 - 01/01/2016 / 09/01/2017 - 10/01/2017 / 10/01/2017 - 11/01/2017 /

  • Gréta mín
  • Myndasíða fjölskyldunnar
  • Víkari.is
  • Bæjarins besta
  • Heiðrún Hámundar
  • Kristján Jóns
  • Baggalútur
  • Palli Skúla
  • Sælands
  • Mandolin Symposium
  • Mugison
  • Lög og textar á íslensku
  • Lög og textar á útlensku
  • Bolungavík
  • Kriss Rokk
  • Naustaskóli

    Powered by Blogger

    Gerast áskrifandi að
    Færslur [Atom]