Framhaldssaga, kafli 1
Í apríl sl. skrifaði ég hjá mér pælingar og endurminningar um gerð hljómplötunnar sem ég vann með öðrum 2010-2011. Þau skrif ætla ég að birta hér í bútum.
Það byrjar svona:
Síðastliðinn laugardag, á 91 árs afmælisdegi Gunnu Jóns, ömmu minnar, voru þrjú ár liðin frá því platan Héðan í frá kom út. Plötuna vann ég á Akureyri með vini mínum Orra Harðarsyni. Það er eitthvert besta samstarf sem ég hef tekið þátt í hingað til. Ég held að lykill að því hversu vel gekk sé undirbúningurinn, gagnkvæmt traust og hrein og bein samskipti, en með þeim má sneiða hjá misskilningi og kergju. Undirbúningnum var þannig háttað að við töluðum hvor við annan og hlustuðum á væntingarnar sem hvor okkar hafði um verkefnið. Hvorugur hafði hins vegar fyrirfram ákveðnar væntingar um útkomuna. Við vildum láta tónlistina sjálfa leiða okkur að henni. En ég hafði svo sem hugmynd um hvað Orri gæti gert í hljóðveri og hann hafði líka góða hugmynd um hvers konar element í tónlist eru mér að skapi. Áður en við gerðum nokkurn skapaðan hlut höfðum við haldið nokkra fundi og gert samkomulag um eiginlega allt er varðaði þá vinnu sem væri í vændum.