Lítil saga af þekktu lagi
Keli sem spilar með mér í hljómsveitinni Bleki og byttum var trommuleikari í hinni landsþekktu sveit Logum frá Vestmannaeyjum sumarvertíðina 1975. Þá hafði Óli Back, trommari Loganna (og æskuvinur tengdapabba), tekið hlé frá spilamennskunni þar sem hann vildi sinna betur fjölskyldunni sem hafði þá nýlega stækkað með fæðingu drengs, sem síðar varð nú trommuleikari í einni af vinsælustu dægurhljómsveitum landsins, Hanna Back í Skítamóral. Keli lætur vel af vistinni hjá Logunum. Segir þetta hafa verið skemmtilegan tíma. Einhverju sinni spurði ég hann að því hvort það hafi ekki fallið í hans hlut að syngja
Minningu um mann af því að Óli Back hafði nú gert það. Óli syngur lagið í útgáfunni sem hér fylgir og er á Youtube, upptka úr Sjónvarpinu frá 1973, og það er hann sem syngur þá útgáfu sem oftast heyrist og fólk þekkir. Keli segir að það hafi nú aldrei komið til þess að hafi þurft að syngja neitt af því sem Óli söng með bandinu því hanni hafi ekki látið sig vanta á böllin í Eyjum þótt hann hefði ekki verið í hljómsveitinni þetta eina sumar. Hann söng þetta bara áfram sjálfur.