Hver er Víkarinn?
Ég var að spila með Bleki og byttum í brúðkaupsveislu í gær. Og viti menn: Brúðguminn er af bolvískum ættum. Þarna voru fáeinir Bolvíkingar.
Spurt er um hjón.
Hún er föðursystir brúðgumans. Hún er líka frænka Fríðu Rúnars. Hjónin eiga þrjú börn sem öll bjuggu í Bolungavík einhvern hluta uppvaxtarins. Þau eru öll komin til manns.
Hann syngur og leikur á hljóðfæri. Ég man samt ekki eftir að hafa nokkurn tíma spilað með honum. Hvernig sem á því stendur. Ég hef samt oft heyrt hann spila. Mér skilst að hann semji lög og texta. Það hef ég þó ekki heyrt. Hann hefur leikið inn á plötu með hljómsveit. Hana hef ég heldur ekki heyrt.
Hver eru þau?