Úr söngbókinni
Þessi tilfinning(1994) Lag & texti: Karl Hallgrímsson
söknuð minn og sorg
sjálfur ber á torg
þar í þéttri borg
er þessi tilfinning
engan gefur grið
grætur ástandið
seint hún finnur frið
- þessi tilfinning
býr í hjörtum ótal elskenda
sem vita að ástin
verður ástand
- ekki tilfinning
Lifði lengi og dó
í lífsins ólgusjó
var þreytt og þótti nóg
- þessi tilfinning
grimm á svip og grá
geym´ana augun blá
var lengi að líða hjá
- þessi tilfinning
býr í hjörtum ótal elskenda
sem vita að ástin
verður ástand
- ekki tilfinning
þessi tilfinning