Úr söngbókinni
Á hjartalaga torgi(1995) Lag & texti: Karl Hallgrímsson
þú kannt þér ei læti
er stígurðu fæti
í fögnuð á hjartalaga torgi
og við hvern þinn fingur
þú leikur og syngur
en söngur þinn líkist helst orgi
þú grætur víst ástir
og glataða auði
en ótti við lífið
er kvalafullur dauði
hún hjarta þitt snerti
og takið svo herti
á torgi með lögun þíns hjarta
svo bjó hún um sárin
og þerraði tárin
sem aleinni minningu skarta
þú grætur enn ástir
og glataða auði
ótti við lífið
er kvalafullur dauði
tárin tala fyrir þig
tíminn dýpkar manvitið
Uppgjöf(1995) Lag: Karl Hallgrímsson – texti: Karl Hallgrímsson & Björgvin Ívar
blasir við steingrá stórbygging
stafar nýaldarsjarma
lýsir upp nóttina og nýtur sín
í neonljósabjarma
fægðir kirkjunnar fulltrúar
færa hórunum rósir
falla í galeyðu gleymskunnar
grýta syndugar rósir
hættur að trúa á tækifærin
hættur að trúa því sem ég vil
trúi ekki lengur á lífið
- guð er ekki til
reykmökkinn vaða á vegum guðs
villtir á svörtum regnbogum
vita að bækur sem boða trú
brenna í vítislogum
hættur að trúa á tækifærin
hættur að trúa því sem ég vil
trúi ekki lengur á líf eftir dauðann
- guð er ekki til
ekki er ég sá eini
sem engu getur breytt
ég bænum mínum beini
út í buskann yfirleitt