Skúffuskáldið skríður fram
Jæja.
Nú er tímabært að gera opinbert að ég mun koma fram á tónlistarhátíðinni
Aldrei fór ég suður sem haldin verður á Ísafirði um páskana. Ég mun koma fram með tónlist sem ég hef samið sjálfur. Flest laganna eru ný, en ég mun líka flytja lög sem ég gerði ´94 og ´95. Þau hafa samt ekki heyrst áður.
Það er búið að skipa hljómsveit sem aðstoðar mig við flutning laganna. Það var æft í gærkvöldi og gekk alveg hreint ljómandi vel. Kristján Freyr og Geiri úr Reykjavík! verða með mér, ásamt Venna Jobba og Davíð Þór. Svo er ég að vonast eftir að fá annan söngvara í dúett í einu laganna. Sjáum til hvernig það gengur.
Atriðið mitt heitir
Karl og mennirnir.
Það er linkur í fyrirsögninni inn á síðu þar sem fjallað er í stuttu máli um atriðin á hátíðinni í ár.