Danni og Unnar
Þegar ég var að spila fyrstu fótboltaleikina á ferli mínum sem knattspyrnumaður með UMFB mynduðu mennirnir sem skrifuðu
þessa grein hafsentaparið í liði andstæðinganna frá Ísafirði. Ég kynntist þeim svolítið strax og enn betur síðar. Þetta eru toppmenn. Ég veit ekki hvað gerðist hjá þeim. Hvers vegna þeir eru farnir að hvetja fólk til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Kannski hafa þeir í alvörunni trú á að Sjálfstæðisflokknum sé best treystandi til að stjórna þjóðinni.
Aðra mótherja í liði ÍBÍ á þessum árum þekkti maður svo sem ekkert. Nema ég þekkti svolítið Pétur Grétars, af því afi hans og amma voru nágrannar af míns og ömmu niðri á Mölum. Og svo var markvörðurinn ÍBÍ kallaður Siggi Sam. Það var auðvelt að muna það nafn. Og einn heitir Jói Bæring. Hann var sígjammandi og algjörlega ófeiminn, svo maður þekkti hann fljótt. Jói var líka keppnismaður og mótherji sem gaman var að kljást við. Þessir strákar urðu líka ágætir kunningjar mínir þegar við urðum eldri og hittumst oftar en bara þegar við öttum kappi á fótboltavöllum.
Unnar Hermanns kvæntist svo Siggu Harðar, vinkonu minni og skólasystur úr MÍ og KHÍ. Maður rekst nú annað slagið á hann, en Daníel göngugarp hef ég ekkert hitt í mörg ár.