Hver er Víkarinn?
Þessi þraut er erfiðari en sú síðasta. Og nú mega foreldrar mínir og systkini ekki taka þátt í leiknum. Ég var nefnilega búinn að segja þeim frá þessum Víkara.
Ég hitti sko Bolvíking á dögunum sem ég þekkti nú varla við fyrstu sýn. Hann átti greinilega jafnerfitt með að þekkja mig. Svo langt er síðan við höfum sést. En eftir að hafa horft með undarlegum svip hvor á annan í nokkrar sekúndur spurði ég hann hvort hann væri ekki örugglega
X. „Jú, jú", sagði hann. „Og ert þú ekki bróðir hans Atla?" Í þessari spurningu hans felst helsta vísbendingin.
Þessi Bolvíkingur er ekki frændi unga rakarans sem klippti mig á rakarastofunni í Hofsbót hér á Akureyri á dögunum. En sá rakari er af bolvískum ættum. En hálfbróðir
X er hins vegar frændi rakarans. Þeir eru þremenningar.
Eins og hlýtur að vera ljóst þekki ég umræddan Bolvíking sáralítið, en ég þekki systur hans ágætlega.
Hver er
X?