Viðbrögð
Ritningarlestur dagsins (styttur og umorðaður)
Maður er nefndur Elkana....
.. Elkana átti tvær konur. Hét önnur Hanna, en hin Peninna. Peninna átti börn, en Hanna átti engin börn.
Framvinda þessarar sögu er þannig að Hanna biður guð um að gefa sér son og lofar því að þann son muni hún færa prestunum í musterinu í borginni Síló til að þar geti hann alist upp og helgað líf sitt guði. Prestur að nafni Elí blessar Hönnu og viti menn, hún verður loksins loksins með barni og fæðir son sem hún nefnir Samúel. Samúel færir hún Elí og vex og dafnar.
Þegar Samúel er enn barn að aldri velur guð hann til að vera málpípa sín. Hann velst af guði til að tala hans máli til Ísraelsþjóðarinnar. Og þetta svínvirkaði. Hans fyrsta verk var að segja fólkina að það þyrfti engan konung, en fólkið tók ekki mark á því. En það treysti honum aftur á móti til þess að koma því áleiðis hvern guð vildi fá fyrir konung. Guð gaf Samúel hint í spjalli og bætti svo um betur og hjálpaði Samúel að sýna fólkinu valið, m.a. með hlutkesti. Þannig varð Sál konungur Ísraels.
Predikun dagsinsÉg var að velta því fyrir mér hvern guð myndi velja til að tala í gegnum til íslensku þjóðarinnar? Ætli það yrði útvarpsstjórinn? Hann hefur tök á að ná eyrum margra. Eða e.t.v. yrði það forsætisráðherrann eða forsetinn.
Hvernig ætli þjóðin myndi bregðast við ef einhver þeirra tilkynnti henni að drottinn hefði talað við hann og nú hefði hann skilaboð að færa þjóðinni frá sjálfum guði?