Shane McGowan Þennan mann hlustaði ég mikið á í denn. Hljómsveitin hans, The Pouges, er ein af uppáhaldshljómsveitum mínum. Hann er frábær laga- og textasmiður og einu sinni var hann líka stórgóður söngvari og slarkfær hljóðfæraleikari. Í hljómsveitinni Pouges lék hann stundum á gítar, banjó og írska trommu, jafnvel píanó. Á nýlegum upptökum á YOUTUBE sem ég var að hlusta á í gærkvöldi varð ég þess nú áskynja að allmikið hefur þessum snillingi farið aftur í söngnum. Það er engin furða, því hann hefur ekki farið sérstaklega vel með hljóðfærið í gegnum tíðina. Eins og sjá má á þessum myndum er hann undir áhrifum á þeim öllum og andlitið ber þess merki að hann hefur drukkið ótæpilega.
¶ 8:49 f.h.
Ummæli:
Einhvað kannast ég við þennan, mér þótti gaman að heyra hann syngja en ekki vildi ég horfa á hann!!
Hann er jafnlítið fyrir eyru og augu. Hins vegar er mússíkin hans bara snilld og ég get montað mig af því að vera að fara berja hann augum og eyrum nú eftir nokkrar vikur. Vona bara að hann tóri þangað til.