Heima er bezt Ég fæ oft svona líka svakaleg heimþrárköst. Þá langar mig svo heim í Víkina. Gréta er ekki eins gjörn á þessi köst og ég. En Hákon skilur mig fullkomlega.
Það er nú öfugt með okkur farið. Ég fæ mjög sjaldan slík köst, ef þá einhvern tíman. Andrea aftur á móti er mjög gjörn á þau. Ég hef ekki komið í Íslands í 3 og hálft ár, hvað þá til Boló. Andrea og Kristófer eru samt dugleg við að fara til Íslands, a.m.k. 5-6 sinnum á meðan ég á eftir að fara. En svona er víst farið með suma.