Góður framburður
Dóttir mín getur ekki sagt eignarfallsmynd orðsins heimur, með greini: „HEIMSINS". Það verður því hálfkómískt þegar hún ætlar að syngja fyrir mig stefið úr Kalla á þakinu til að gleðja mig: „Kalli, Kalli, heimski besti Kalli".
¶ 11:44 e.h.