Myndirnar i uppsveitunum
Þær eru fínar myndirnar okkar en netsambandið inn á heimilin er ekki alveg eins og best væri kosið. Að mörgu leyti erum við mikið á eftir hérna. Það var t.a.m. verið að setja efni á vegslóðann se, húsið sem ég bý í stendur við. Ég efast um að úr því verði einhver vegur og hvað þá að hann verði einhverntíma malbikaður. Það eru ekki nema svona 27 ár síðan allra síðustu göturnar í smábænum sem ólst upp í voru malbikaðar og gangstígar og göngustígamál voru skömmu síðar komin í þokkalegt lag. En það er búið að lofa adsl sambandi hvað eftir annað. Við bara bíðum.
Mér fannst bara flott að hafa svolítið hvítt með textanum í síðustu færslu. Það var í námsbókarfræðunum í Kennó kallað að það loftaði um textann. Er þetta ekki fínt?
Svakalega mikið um að vera í Víkinni um helgina (fyrir mömmu: á helginni!). Stuðmenn og fullt af frægu liði á markaðsdegi. Eru Jómmi og Kristján Jón búnir að skemmta í Kjallaranum?
Næsta gigg hjá mér verður á Hótel Geysi á fimmtudagskvöldið. Þá á að spila með Sólmundi fyrir fjölþjóða starfsmannahóp frá flugfélagi. Svo er eitthvað meira framundan í spileríi.
Nú er búið að fresta leiknum sem átti að fara fram í kvöld - ég sem hefði skorað. Danni setti laglegt mark í gær fyrir Valsarana.