Innanhússbreytingar
Eins og hér hefur fram komið er Bræðraborgin þriggja hæða hús. Þegar Gréta var farin að finna ferlega mikið til í skrokknum á meðgöngunni pökkuðum við borðstofunni niður í geymslu og fluttum svefnherbergið úr risinu niður í stofuna, svo hún losnaði við að ferðast mikið í stiganum. Þannig höfum við búið undanfarna mánuði. Það hefur verið þröngt um okkur. Í gærkvöldi var þessu öllu snúið við aftur. Stofan er aftur orðin stór og fín, reyndar mun rúmbetri en áður þar sem borðstofuborðið er enn í geymslunni, og svefnherbergið er aftur orðið að svefnherbergi.
En hvað þetta er skemmtilegt blogg.............................. NOT!!!!!
Ég verð að fara að finna upp á
nýju þema. Svona eins og skákþemanu um páskana. Einhverju mjög bolvísku. Hvað gæti það verið?