Gott brauð
Hákoni tókst vel til á sviðinu í Brekkó í gær. Fallegra brauð hef ég barasta aldrei séð!
Hann sagði nú ekkert í þessari uppfærslu af Litlu gulu hænunni, en þurfti að vera á verði og hafði nokkrum sinnum mikilvægu hlutverki að gegna varðandi tímasetningar. Fyrst var hann fræ og svo fór hann inn í ofninn, þá þurfti hann að gæta þess að lötu dýrin gætu ekki étið sig og svo lagðist hann flatur á disk haænunnar og unganna hennar. Duglegur.
Duglegur já. Perla María er duglega á koppnum. Hún þarf að pissa í tíma og ótíma og pissar í kopp. Þá er henni hrósað þessi ósköp eins og gengur með börn við þessar aðstæður og verður ofboðslega stolt og segir:
„DUuuuleeeg, pabbi, duleeeg!!!“