Útgáfutónleikarnir
http://www.flickr.com/photos/eythoringi/5813492202/in/photostream/
Myndir frá útgáfutónleikunum á Græna hattinum á Akureyri 1. júní 2011.
Tónleikar
Ég hélt fyrstu tónleikana eftir að platan kom út í gær. Þetta voru útgáfutónleikar plötunnar. Þeir fyrstu af þremur. Í gær spilaði ég á Græna hattinum á Akureyri. Ég hafði hljómsveit með mér. Þvílíka úrvalstónlistarmenn og öðlinga. Birgir Baldursson á trommur, Pálmi Gunnarsson á kontrabassa, Eðvarð Lárusson á gítar og Kjartan Valdemarsson á píanó. Tónleikarnir heppnuðust ákaflega vel. Mér finnst ég vera lánsamur að fá að flytja tónlist mína fyrir áhugasama hlustendur með svona góðri hljómsveit.
Næstu tónleikar verða á Akranesi á laugardagskvöldið og svo á Rósenberg í Reykjavík á mánudagskvöld. Þið sem búið fyrir sunnan eigið þá kost á því að koma og njóta þessa alls. Ég mæli óhikað með því.