Eftir að hafa starfað sem kennai í tvö ár fylgdi ég Grétu minni til Danmerkur þar sem hún var í myndlistarnámi. Þar vann ég verkamannsstörf, sem var svo sem ágætt, en samt saknaði ég kennarastarfsins. Ég brann í skinninu. Ég fékk útrás í tölvupóstsamskiptum við vini mína, kennarana Jón Pál og Björgvin Ívar. Fljótlega færðust öll okkar skrif í þann farveg að skilgreina okkar hugmynd um það hvernig frábær skólastjóri starfaði. Þetta endaði með því að ég tók ákvörðun um að þegar ég flytti aftur til Íslands skyldi ég starfa undir skólastjóra sem hefði það orð á sér að vera frábær skólamaður, hvetjandi leiðtogi, öflugur liðsstjórnandi og fyrirmynd kennaranna sem hann starfaði með. Við leituðum að þessum skólastjóra og fundum hann í Grundaskóla á Akranesi. Það var þess vegna sem við settumst að á Akranesi árið 2000. Mig langaði að vera í liði Gutta. Það að ég hafði verið í Fjölbrautaskólanum á Akranesi og þekkti þar svolítið af fólki hafði ekkert að segja um þá ákvörðun.
Gutti var frábær leiðtogi. Hann lagði á mann mikla ábyrgð, gerði miklar kröfur til manns í starfi, en um leið lagði hann á mann traust og frelsi til þess að starfa eins og manni þótti sjálfum best. Hann hvatti mann til dáða þegar mann datt í hug að reyna einhverja sérstaka aðferð eða þegar maður fór af stað með einhverja tilraun í kennslu eða fyrirkomulagi. En hann skipti sér ekkert af því hvernig maður fór að. Hann vildi líka að við kennararnir ynnum saman að sem flestu sem við tókum upp á bralla. Við kenndum í teymum. Vissulega veitti Gutti okkur ráð, en það var helst bara þegar maður óskaði eftir þeim. Hann spjallaði mikið við okkur á kennarastofunni. Var félagi okkar. Það var ómetanlegt að eiga hann að þegar spjót stóðu að okkur frá bæjarbatteríinu. Hann þekkti það allt saman út og inn og tók alltaf afstöðu með okkar málstað. Eins þegar eitthvert ósætti kom upp í okkar hópi, eins og gat gerst þar sem dýnamíkin var stundum töluverð, þá gat maður alveg treyst hans leiðbeiningum um sættir og lendingu málanna. Og þegar þurfti að vinna í allra erfiðustu málunum sem umsjónarkennarar lenda í var hann eins og klettur á bak við mann og hjálpaði manni við að undirbúa sig fyrir fundi. Starfsmannaferðir gerði hann skemmtilegar og aðra viðburði utan skólatíma sömuleiðis. Gutti var ekkert alltaf að standa í undirbúningi slíkra viðburða, það gerðu aðrir, en hann var búinn að koma hlutunum þannig fyrir að vinnustaðurinn gekk eins og tölva sem hann hafði forritað. Magnaður skólamaður, traustur og öruggur, skemmtilegur og hvetjandi. Frábær skólastjóri. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa með Gutta og hef reynt að taka mér hann til fyrirmyndar um ótalmargt í mínu starfi sem kennari.
Einu sinni réð Jón Páll vinur minn mig til þess að mála fyrir sig í íbúð sem hann var nýfluttur inn í. Þá var hann í stjórnunarnámi í Kennaraháskólanum. Þetta er mjög eftirminnileg vinnutörn. Ég spartslaði, pússaði, sópaði, málaði á meðan Jón spurði mig hverrar spurningarinnar á fætur annarri og skráði hjá sér svörin. Allar spurningarnar snérust um það hvað Gutti gerði við þessar eða hinar aðsæðurnar, hvernig hann hefði verið vanur að bregðast við hinu og þessu.... o.s.frv. Gutti er fyrirmyndin sem skólastjórar ættu allir að fylgja.
Minningin um góðan dreng lifir.
2016-07-09keyun
SvaraEyðanfl jerseys
ray ban outlet
ralph lauren
retro jordans 13
adidas yeezy
giuseppe zanotti outlet
designer handbags
michael kors handbags
adidas wings
fitflop sale
longchamp outlet
true religion outlet store
polo ralph lauren
christian louboutin shoes
replica watches
kate spade outlet
reb christian louboutin
fitflop sandals
louis vuitton
michael kors outlet clearance
michael kors outlet
ghd flat iron
pandora jewelry
kate spade handbags
ghd hair straighteners
michael kors outlet clearance
louis vuitton outlet online
cheap jordans
louis vuitton outlet
oakley vault
celine outlet
nfl jerseys wholesale
michael kors handbags
nike running shoes
michael kors outlet online
coach outlet online
coach outlet store
jordan retro 4
michael kors canada outlet
ciiaov9947gg
SvaraEyðagolden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
supreme outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet