þriðjudagur, ágúst 31

Hver er Víkarinn?

Nú spyr ég um hjón. Þótt hún sé fæddur og uppalinn Víkari en hann ekki þekki ég hann eiginlega meira heldur en hana. Það kemur nú þannig til að hann var tíður gestur á heimili foreldra minna þegar ég var sirka 4-5 ára. Hann notar gleraugu, hefur stundað íþróttir og þjálfað börn í íþróttum. Saman stóðu þau hjónin í verslunarrekstri í einhver ár. Börnin þeirra eru öll af sama kyni og hún er frænka Valdimars Víðissonar Jónssonar Sigurgeirssonar Sigurðarsonar frá Folafæti. Hver eru þau?

8 ummæli:

  1. Nafnlaus5:55 e.h.

    Já, já ;o)
    mamma

    SvaraEyða
  2. Þau báðu að heilsa ykkur mamma.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus6:19 e.h.

    Oddný og Kristján Möller ?
    kv.Anna Svandís

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus8:55 e.h.

    Þessi var nú lauflétt.
    Matmóðir ráðherrans.

    SvaraEyða
  5. Þessa þraut fattaði ég um leið og ég las hana, hef sjaldan verið jafn fljót að átta mig á því hver væri Víkarinn.

    SvaraEyða
  6. JÆJA, of létt bara. En rétt svar samt.

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus2:04 e.h.

    Það er langt síðan að ég hef kveikt á perunni í þessum leik en núna var ég með þetta rétt :-)

    Erla Kristins

    SvaraEyða
  8. Já, og ég hefði nú líka getað nefnt þig Erla í stað þess rauða.

    SvaraEyða