Víkarinn sem ég hitti í Rúmfatalagernum á Glerártorgi í dag var kjörinn formaður Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði meðan ég var þar við nám. Hann hafði þá áður lokið námi í iðn sem hann starfaði svo eitthvað aðeins við, en hefur svo valið sér annan vettvang til að starfa á. Hann var mikill íþróttakappi á yngri árum og hefur alla tíð tileinkað sér heilbrigðan lífstíl. Hann keppti fyrir UMFB í fleiri en einni íþróttagrein og náði afbragðs árangri í einni þeirra, bæði fyrir UMFB og líka fyrir hafnfirskt íþróttafélag.
Hver er Víkarinn?
gat ekki commentað á tilraunarvefnu, kannski ágætt þar sem ég er búinn að vinna þetta svo oft. En þetta er örugglega Margrét Halldórsdóttir íþrótta og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar
SvaraEyðaUndir þetta ritaði Kristján Þór tvíburi, bolvískasti Hnífsdælingurinn á Ísafirði.
Rétta svarið náttúrulega.
Já, Kristján Kristjáns sendi mér bara póst því hann átti í einhverju basli með athugasemdakefið.
SvaraEyðaMargrét Halldórs lærði hárgreiðslu. Svo kom hún vestur og varð formaður Nemendafélagsins, settist í bekk með Kristjáni Ágústi og þeim sem voru tveimur árum á undan mér í skólanum, minnir mig, og varð stúdent frá MÍ. Hún keppti um tíma fyrir SH í sundi, vona ég að ég muni rétt.
Kv.
Kalli
Þetta vissu Bolvíkingarnir Stína Halldórs og Halli Kristjáns!
SvaraEyða