laugardagur, apríl 4

R

Hringur Karlsson er nýorðinn 5 ára. Hann hefur ekki getað sagt r-hljóðið þar til nýlega. Nú segir hann helst ekkert annað. Hann er svo stoltur af þessu nýja hljóði að öll lög sem hann raular (og hann er síraulandi) eru rauluð á err-i. Það er ekkert la la la eða ba ba ba eða je je je, bara err.

6 ummæli:

  1. Nafnlaus10:34 e.h.

    Það er nú eins gott að geta sagt
    -r- þegar maður heitir Hringur.
    Kv. frá ömmu Stínu sem stödd er í Hafnarfirði.

    SvaraEyða
  2. Loksins getur hann sagt Rrrrreykjavík!

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus12:06 e.h.

    Þá hlýtur stuðningurinn að vera í lagi... ekkert smá góð söngæfing;o)

    Annars til hamingju með drenginn.

    Bestu kveðjur,
    Heiðrún Hámundar

    SvaraEyða
  4. Já, rétt Heiðrún. Enda er Hrrrrringur, í alvöru talað, algjörlega frábært efni í söngvara.

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus8:27 e.h.

    Þá getur hann sagt K.R.
    kv.Atli Freyr

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus10:15 e.h.

    Góður Atli Freyr :)
    Sjáumst á morgun.

    Stína.

    SvaraEyða