2. nóvember.
Perla María: „Hvenær er það eiginlega búið þetta tvöþúsundogátta? Ég er orðin hundleið á því. hvenær kemur þetta tvöþúsundogníu?"
Ég: Eftir 60 daga.
3. nóvember.
Perla María: „Hvenær er það eiginlega búið þetta tvöþúsundogátta? Ég er orðin hundleið á því. hvenær kemur þetta tvöþúsundogníu?"
Ég: Eftir 60 daga.
Perla María: „Nei, það var í gær".
Hér á þessu heimili er einmitt talið niður að jólum og svo í gær þá spurði hún mig hvað væru margir dagar þangað til hún ætti afmæli....Spurning um að byrja að telja núna þegar afmælið er í maí :) Það er samt alveg ótrúlega gaman að þessu.
SvaraEyðaEru ekki til 2 myndavélar á heimilinu, er farin að sakna þess að sjá ekki myndir af börnunum, hef ekki séð þau síðan í ágúst.
SvaraEyðaamma Stína.
Ertu alltaf í ræktinni? Er enginn tími lengur til að blogga?
SvaraEyða