Ég get sagt um þennan Víkara, sem er kona, að hann er mikið félagsmálafrík. Missir helst ekki af nokkurri skemmtun eða mannfagnaði í Bolungavík.
Hún á fjögur börn sem öll eru eldri en ég.
Hún er ekki skyld mér, en samt kallaði ég hana frænku mína í mínu ungdæmi. En það á sér eðlilegar skýringar.
Við hittumst í Kópavogi í gærkvöldi.
Hver er VÍKARINN?
Þessi lýsing getur hæglega átt við föðursystur mína Hildi Einarsdóttur, a.k.a Hiddu frænku. Hafir þú kallað hana frænku í uppeldinu þá gæti það hafa verið áhrif frá æskuvini þínum Halla Pé. Auk þess sem móðir þín er náttúrulega arfaslök í ættfræði eins og fram hefur komið hér á síðunni. kv.Kj
SvaraEyðaJú, jú. Þannig er þetta allt saman.
SvaraEyðaEn annars barst mér líka rétta svarið símleiðis áðan frá ónefndum bifvélavirkja og Kópavogsbúa.
Er bifvélavirkinn orðinn að Kópavogsbúa?
SvaraEyðaÉg kallaði hana líka alltaf Hiddu frænku og geri enn :)