
Gréta á geisladisk með lögunum úr undankeppni Eurovision sem hún hlustar stundum á í bílnum. Þá syngjum við stöku sinnum með, t.d. í laginu eftir Dr. Gunna, Ís í boxinu mínu. Hringur stoppar okkur alltaf af og leiðréttir textann sem við förum með. Í meðförum hans, og hann syngur þetta oft, er textinn svona:

Viltu vera í þessu boxi mínu?
Kúlan í brauðforminu.
Kaupi mér ís með gulli og hrísgrjón.
Viltu vera ísinn minn?
Mér finnst þetta miklu betra svona. Ég skal segja Gunna að hann geti sleppt því að tala við einhverja bloggara út í bæ til að búa til texta. Næst hringir hann í Hring!
SvaraEyða- Kriss
Hringur er auðvitað söngvari af Guðs náð, en fyrirgefðu fáfræði mína, hvernig er rétti textinn??
SvaraEyðaÉg er ekki viss. Prófaðu að gúggla!
SvaraEyðaViltu vera ís í boxinu mínu?
SvaraEyðaKúlan í brauðforminu?
Ég kaup' af þér ís
með kurli og hrís.
Ó, viltu vera ísinn minn?
Þar hefur þú það.