miðvikudagur, apríl 23

Um bolvíska pólitík

Meiri ógæfan sem meirihluti bæjarstjórnar Bolungavíkur er búinn að koma sér í. Leiðinlegt að svona þurfi að fara. En annars skilst mér á því bæjarstjórnarfólki sem ég þekki að það sé nú afar sjaldan sem komi til alvarlegs ágreinings milli meirihluta og minnihluta. Menn hafa lengi borið gæfu til að leysa málin í sameiningu. En þetta er nú allt saman vænsta fólk og hvernig sem meirihlutinn verður óska ég honum velfarnaðar. Nú eru loksins að skapast tækifæri í Bolungavík til að bæjarfélagið dafni á ný. Það má ekki klúðra þeim með argaþrasi. Ég held að menn ættu að hugsa sig vel um áður en þeir ákveða að sparka þeim sem situr í bæjarstjórastólnum. Mér hefur fundist hann koma vel fram í fjölmiðlunum og vera öflugur talsmaður Bolvíkinga og Vestfirðinga allra.

2 ummæli:

  1. Sammála þér Kalli. vona að Grímur verði áfram, mér finnst hann útá við hafa staðið sig vel!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus8:57 e.h.

    Ég er nú ekki þekkt fyrir að vera pólítísk, en ég vona að Grímur verði áfram. Hann hefur komið Bolungarvík á kortið og talað máli Bolvíkinga.
    Anna Svandís

    SvaraEyða