laugardagur, febrúar 16

BOSTON

Þá hef ég endurheimt kærustuna frá USA. Hún fór út með eina stóra, hálftóma ferðatösku. Hún kom svo heim með þrjár misstórar úttroðnar töskur og hafði auk þess hlaðið á sjálfa sig þyngsta fatnaðinum sem hún keypti sér í einhverju mollinu þarna í Boston. Þetta var annars engin skemmtiferð hjá henni. Hún er algjörlega útkeyrð blessunin. En þær systur gáfu sér þó tíma til að koma við í mollinu. Mér lék því forvitni á að vita hvort þær hefðu þá ekki heimsótt Staupastein og gert ferðina þannig að menningarferð svona í leiðinni. „Er hann í Boston?", svaraði Gréta.

Ég veit eiginlega ekkert um Boston.
Ég þekki 6 staðreyndir um staðinn;
ég hef nokkra hugmynd um það hvar hann er á landakortinu,
ég veit að þar er þessi frægi spítali sem hjartveik börn frá Íslandi hafa mörg heimsótt,
ég veit að þar er Harvard haskólinn,
ég veit að einhvers staðar þarna í borginni er frægur tónlistarháskóli sem heitir Berkley
ég man að körfuboltasnillingurinn Larry Bird lék með Boston Celtic og að þeir léku í hvítum og grænum búningum
og ég veit að þættirnir um Staupastein áttu að gerast á samnefndri krá sem er í Boston og leikmyndin var nákvæm eftirlíking af henni.

Nú veit ég líka að henni Grétu minni þykir verðlag á fatnaði í Boston vera njög hagstætt.

1 ummæli:

  1. Nafnlaus9:20 f.h.

    Ég skil hana Grétu vel að hafa komið með 3 fullar töskur heim. Ég fór til Boston síðasta vetur með eina stóra tóma tösku. Ég var í rúman sólahring og taskan mín kom full heim og ég fékk líka að setja smá í töskuna hjá tengdó.
    Það er ódýrt og gaman að versla í Boston.
    Kv.Anna Svandís

    SvaraEyða