föstudagur, janúar 18

Stálið mætir í EM stofuna


Mesta íþróttanörd landsins verður í sjónvarpinu á sunnudaginn. Kristján Jónsson verður sérfræðingur í EM stofunni. Kannski hann fari yfir feril sinn sem handboltastjarna í Herði á Ísafirði og ÍR í Reykjavík. Hann var hornamaður. Ég sá hann ekki leika með þeim liðum. En ég er nokkuð viss um að hafa verið fyrsti handboltaþjálfarinn sem hann hafði. Það var í UMFB. Þá var hann gríðarlega áhugasamur og æfði upp fyrir sig, með eldri drengjum. Hann var sérstaklega útsjónarsamur og snjall að skjóta á markið. Kunni að setja snúning á boltann og alls konar þannig listir fór hann létt með.

Ég tel víst að íþróttafréttamennirnir hjá RÚV muni ekki reka Kristján Jónsson á gat þegar kemur að handbolta. Hann getur sagt þeim margt um íþróttina sem ekki er á allra vitorði.

Myndina af KJ tók ég í algjöru leyfisleysi af vef annars íþróttafréttamanns, Elvars af Skaganum.

3 ummæli:

  1. Ekki vissi ég að þú hefðir þjálfað handbolta Kalli minn. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

    Hann Kristleifur minn var líka handboltaþjálfari. Hann þjálfaði allar bestu vinkonur mínar í handbolta. Þær reyndu mikið að fá mig með á æfingar en ég þorði ekki fyrir mitt litla líf vegna þess að þjálfararnir voru svo miklir töffarar.

    Það voru Kristleifur Brandsson og Hafsteinn Gunnarsson;o)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:57 f.h.

    Þessi snúningur á boltanum hjá Stálinu fylgir mér enn því ég náði afar sjaldan að verja þá bolta. Stóð í markinu eins og einhver vitleysingur.....

    SvaraEyða