laugardagur, desember 22

Hver er Vikarinn?

Ég rakst á Bolvíking í hljómplötuverslun í dag. Eða kannski er hann ekki svo mikill Bolvíkingur. Hann er alla vega kenndur við annan stað. En hann hefur búið og starfað í Bolungavik og þar á hann marga að. Ég hef barasta ekki hitt hann áður svona til að spjalla við hann en mikið heyrt um hann talað. Ég fann mig knúinn að heilsa upp á hann. Kynna mig og leyfa honum að sjá framan í mig.

Hver er Víkarinn?

6 ummæli:

  1. Nafnlaus11:53 e.h.

    Varstu í sveitinni eða
    Stóru-Víkinni??

    SvaraEyða
  2. Ég var í Flóanum.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus3:08 e.h.

    Var hann að kaupa Duran Duran músík?

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus5:50 e.h.

    Býr hann eða bjó í Hveragerði??

    SvaraEyða
  5. Hemmi hressi heldur áfram að giska á sama manninn. Nei, ég hitti ekki Ómar Dadda. En ég held að mamma sé orðin volg. Hann býr þarna í nágrenni við Selfoss og hann er þjóðsagnapersóna í lifenda lífi,

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus6:19 e.h.

    Ég hef þetta fyrir mig enn um sinn.

    Skatan er komin í pottinn og angar um allt, gestirnir að koma, vildirðu ekki vera kominn??
    Örvar er búinn að planta sér í stofunni, ætlar að tala við okkur eftir mat ;)

    SvaraEyða