mánudagur, nóvember 12

17/11, klukkan 17.

Unnendur fallegrar tónlistar og lifandi flutnings fá örugglega góða tónleika næsta laugardag. Þá mun Skálholtskórinn halda útgáfutónleika nýju plötunnar. Jafnframt verður flutt kantata eftir Jón Ásgeirsson, ásamt Barna- og Kammerkór Biskupstungna og Hrólfi Sæmundssyni, baritón.

Góðir kórar, góður hljómur og falleg kirkja. Yndislegur eftirmiðdagur í Skálholti.

Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00.

Við Hákon Karlsson verðum þarna báðir að syngja.

3 ummæli:

  1. Nafnlaus7:07 e.h.

    Ég kemst því miður ekki, ætla að fara á Gosa með Andreu og skella mér svo á jólahlaðborð og tjútta um kvöldið. Skil ekkert í ykkur að halda þetta einmitt þennan dag, er ekkert að gera allar hinar helgarnar ;) Gangi ykkur feðgum vel.

    SvaraEyða
  2. Komdu bara 8. desember. Þá verða Aðventutónleikar. Heilmikið jólaprógram með einsöngvurum og strengjakvintett. Það verður flott.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus10:37 e.h.

    Líst vel á það. Ég mæti hvort eð er þessa helgi til að kíkja á afmælisbarnið.

    SvaraEyða