föstudagur, maí 18

Tengja

Ætli það verði hægt að tengja alla þá sem verða leikmenn umferðarinnar á Íslandsmótinu við Bolungavík?
Það gæti orðið nokkuð langsótt. En ætti ég ekki samt að reyna? Þannig vinn ég svo margt í einu. Í fyrsta lagi held ég mig við Víkina, eins og mér þykir svo gaman að gera hér á blogginu. Í öðru lagi hlýt ég að virkja lesendur til að kommenta því þeir þekkja sjálfsagt margir önnur tengsl en ég og geta þannig hjálpað mér að tengja rétt. Í þriðja lagi er ættfræðin svo þjóðlegt skemmtilegt viðfangsefni. Þar að auki hef ég með þessu móti eitthvað að skrifa um í allt sumar.

4 ummæli:

  1. Nafnlaus2:54 f.h.

    Mér líst vel á þetta og ég tala nú ekki um hana móður okkar sem verður ábyggilega virkur þátttakandi í þessum lið hjá þér.

    SvaraEyða
  2. Það er knattspyrnuáhuginn, sjáðu til!

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus1:52 e.h.

    Einmitt, skyldi einhver hafa farið á fótboltaleik og það í útlöndum og misst af mörkunum þar sem hún/hann var að lesa og hélt að þau yrðu endurtekin eins og í sjónvarpinu??Þetta er nú fótboltaáhuginn en annað mál er með ættfræðina.

    SvaraEyða