mánudagur, desember 18

Hver er Víkarinn?

Ég var að koma heim frá því að syngja á útgáfutónleikum Brynjólfsmessu eftir Gunnar Þórðarson. Einn Bolvíkingur var meðal gestanna í Grafarvogskirkju. Ég hitti hann aðeins eftir tónleikana. Við þekkjumst vel. Hver er þessi Víkari?

1. vísbending:
Þessum Bolvíkingi er margt til lista lagt. Hann er t.a.m. listakokkur. Hann hefur í gegnum tíðina verið virkur í ýmsu félagsstarfi í Víkinni, alla vega í tveimur deildum Ungmennafélagsins, Slysavarnarfélaginu og í pólitísku starfi.

3 ummæli:

  1. Nafnlaus4:41 e.h.

    Við Þóra erum búnar að brjóta heilann í allan dag, en finnum engan, ellimörk kannski?
    Enda veit maður svo lítið um góða kokka, engin hefur boðið mér í mat!!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus4:59 e.h.

    Magnús Hansson

    SvaraEyða
  3. Flóknasta uppskrift sem ég man eftir Magnúsi segja mér af er Matrkex með smjöri.

    SvaraEyða