miðvikudagur, ágúst 30

Gæðatími

Ég var að breyta til í starfi mínu í skólanum. Þennan veturinn verð ég ekki umsjónarkennari. Það getur verið erilsamt starf að vera umsjónarkennari og það getur tekið á sig myndir, vegna þeirrar ábyrgðar sem því fylgir, sem eiga ekkert endilega mikið skylt við kennslu. Í vetur er ég faggreinakennari. Ég kenni íslensku (og reyndar tungumál í forföllum í tvo mánuði) á unglingastigi og svo kenni ég tónmennt í öllu árgöngum. Ég hef talsverða reynslu af íslenskukennslu á unglingastigi og hef haft áhuga á öllu sem henni tengist lengi. Svo það er mér létt verk, að kenna íslenskuna og halda utan um það allt saman. En ég er næstum því nýgræðingur í tónmenntinni og það er heilmikil áskorun að takast á við hana. Og það tekur sinn tíma, en mér finnst það mjög skemmtilegt.

Fyrstu dagana í þessu breytta starfi hef ég komið fyrr heim á daginn en ég var vanur. Og þessi tími, milli hálfsex og sjö, er alveg frábær til að verja með krökkunum og konunni. Reyndar verða krakkarnir stundum þreyttir og pirraðir á þessum tíma, en þau hafa verið svo hress þessa daga. Voðalega gaman.

6 ummæli:

  1. Nafnlaus9:21 e.h.

    Gott hjá þér ;)

    SvaraEyða
  2. Helsti munurinn á því að búa hérna í Danmörku og heima á Íslandi er hve miklum tíma fjölskyldan nær að verja saman.

    Það finnst mér alveg ómetanlegt;o)

    SvaraEyða
  3. Ég man þá tíð! Mmmmmm...
    Er ekki eitthvað sniðugt handa mér og Grétu að læra í skólanum þínum og laust hús í götunni?

    SvaraEyða
  4. Nei, nei, bara djók. Það er fínt í sveitinni!

    SvaraEyða
  5. Það er allavega nóg af skólum í Århus og ef þið farið strax á biðlista þá eru örugglega miklar líkur á að þið getið fengið hús hérna í götunni;o)
    Er ekki bara málið að safna sem flestum af gamla fjölbrautagenginu hérna, he, he;o)

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus11:58 f.h.

    Hæ Kalli :)

    Langar að óska þér velgengni í því sem þú ert að taka þér fyrir hendur í vetur.

    Ég og Þór Birgis og 2 aðrir nemendur FVA sitjum nú í aðalstjórn nemendafélagsins. Mjög gaman en rosa mikil vinna, sérstaklega núna á meðan við erum að koma öllu í gang og svona. Frábært innlegg í reynslubankann okkar :)

    Hafðu það gott í sveitinni.
    Kv. Steinunn Eik

    SvaraEyða