Ég var að breyta til í starfi mínu í skólanum. Þennan veturinn verð ég ekki umsjónarkennari. Það getur verið erilsamt starf að vera umsjónarkennari og það getur tekið á sig myndir, vegna þeirrar ábyrgðar sem því fylgir, sem eiga ekkert endilega mikið skylt við kennslu. Í vetur er ég faggreinakennari. Ég kenni íslensku (og reyndar tungumál í forföllum í tvo mánuði) á unglingastigi og svo kenni ég tónmennt í öllu árgöngum. Ég hef talsverða reynslu af íslenskukennslu á unglingastigi og hef haft áhuga á öllu sem henni tengist lengi. Svo það er mér létt verk, að kenna íslenskuna og halda utan um það allt saman. En ég er næstum því nýgræðingur í tónmenntinni og það er heilmikil áskorun að takast á við hana. Og það tekur sinn tíma, en mér finnst það mjög skemmtilegt.
Fyrstu dagana í þessu breytta starfi hef ég komið fyrr heim á daginn en ég var vanur. Og þessi tími, milli hálfsex og sjö, er alveg frábær til að verja með krökkunum og konunni. Reyndar verða krakkarnir stundum þreyttir og pirraðir á þessum tíma, en þau hafa verið svo hress þessa daga. Voðalega gaman.
Gott hjá þér ;)
SvaraEyðaHelsti munurinn á því að búa hérna í Danmörku og heima á Íslandi er hve miklum tíma fjölskyldan nær að verja saman.
SvaraEyðaÞað finnst mér alveg ómetanlegt;o)
Ég man þá tíð! Mmmmmm...
SvaraEyðaEr ekki eitthvað sniðugt handa mér og Grétu að læra í skólanum þínum og laust hús í götunni?
Nei, nei, bara djók. Það er fínt í sveitinni!
SvaraEyðaÞað er allavega nóg af skólum í Århus og ef þið farið strax á biðlista þá eru örugglega miklar líkur á að þið getið fengið hús hérna í götunni;o)
SvaraEyðaEr ekki bara málið að safna sem flestum af gamla fjölbrautagenginu hérna, he, he;o)
Hæ Kalli :)
SvaraEyðaLangar að óska þér velgengni í því sem þú ert að taka þér fyrir hendur í vetur.
Ég og Þór Birgis og 2 aðrir nemendur FVA sitjum nú í aðalstjórn nemendafélagsins. Mjög gaman en rosa mikil vinna, sérstaklega núna á meðan við erum að koma öllu í gang og svona. Frábært innlegg í reynslubankann okkar :)
Hafðu það gott í sveitinni.
Kv. Steinunn Eik