föstudagur, maí 12

Geim handa tveim

Ég man eftir sjónvarpsþáttum, mjög skemmtilegum þáttum, um félagslíf í framhaldsskólum landsins sem hér Annir og appelsínur. Þá þótti það örugglega svakalega ferskt og flott heiti á sjónvarpsþætti. Það þætti ógeðslega lélegt núna. Þannig er nú það.

Mér finnst eins og ég hafi einhverntíma áður minnst á það hérna á síðunni, e.t.v. fyrir löngu síðan, hvað ég var stoltur af Jónasi frænda mínum þegar hann söng og lék lagð sitt Geim handa tveim í þessum þætti fyrir sirka 22 árum síðan. Það var svona (þori þó ekki að ábyrgjast að þetta sé nákvæmlega rétt):

Geim handa tveim
geim um allan heim
geim handa tveim
aðeins þeim tveim

Ó, komdu með mér heim
í geim handa tveim
við svífum inn í draumaheim
geim handa tveim

Oh, I love you
you love me too
I love you three
and you love me

P.s. Ekki láta Jónas Pétur vita af þessari birtingu ljóðsins hans. Ég hef svolitlar áhyggjur af því hvernig stefgjöldin yrðu innheimt!

2 ummæli:

  1. Ertu að segja mér að það séu 22 ár síðan!!!!

    Þessi þáttur var til á vídeospólu hjá ömmu og afa og ég kunni hann utan að og söng með öllum lögunum. Þessi þáttur þótti takast mjög vel og var talað um að ásókn í FVA hefði aukist eftir sýningu hans:o)

    Ég man alveg greinilega laglínuna við "Geim handa tveim" ;o)

    SvaraEyða
  2. Ja það hljóta að vera þetta mörg ár síðan. Þessi Jónas frændi minn er fæddur 67 og var örugglega þetta 17 - 18 ára þegar þetta var.

    Þetta voru góðir þættir.

    SvaraEyða