fimmtudagur, desember 31

Hver er Víkarinn?

Áramóta-Víkarinn er frændi Hannesar Más og Halla Pé og þeir þreytast seint af því að segja söguna af kynnum þeirra af honum þegar hann var púki í 5. - eða 6. flokki í fótboltaliði UMFB. Hann er bráðskemmtilegur, fjallmyndarlegur, fluggreindur og kemur ákaflega vel fyrir. Ég er eiginlega viss um að hann hafi vonast eftir að ég tæki hann fyrir hér á síðunni þegar við kinkuðum kolli hvor til annars þegar við vorum að kaupa flugeldana af björgunarsveitinni Súlum fyrr í dag. Hann var þannig á svipinn.

Hver er Víkarinn?

8 ummæli:

  1. Nafnlaus7:17 e.h.

    Getur þetta verið Valdimar Víðisson.
    kv
    Hannibal

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus7:34 e.h.

    Eða bróðir hans Valdimars, hann heitir að mig minnir Jón eitthvað Víðisson.
    kv
    Hannibal

    SvaraEyða
  3. Já, já.... Jón Eggert. Þú ert bara alltaf með þetta!

    SvaraEyða
  4. Já, já.... Jón Eggert. Þú ert bara alltaf með þetta!

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus9:53 e.h.

    Ég er gjörsamlega að rústa þessum víkurum sem lesa þessa síðu. :o)
    kv
    Hannibal

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus10:10 f.h.

    Innst inni ertu Víkari Hannibal.

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus6:11 e.h.

    Það er þá alveg innst :o)
    kv
    Hannibal

    SvaraEyða
  8. Nafnlaus10:06 f.h.

    Hann er VÍKARI!!
    Stína H.

    SvaraEyða