Næturvaktin
Dagvaktin
Fangafaktin (var ekki búið að gefa út að það yrði næsta sería?)
Mér þætti tilvalið að þegar Georg Bjarnfreðarson, Ólafur Ragnar og Daníel verða mættir á fangavaktina, hitti þeir þar fyrir Þór og Danna úr Lífs-myndum Þráins Bertelssonar.
Mér finnst þessi hugmynd mín ekki bara góð, heldur aldeilis brilljant! Sjáið ekki fyrir ykkur möguleikana sem handritshöfundarnir hafa í alla vega fléttur og vitleysisgang?
Þekkir ekki einhver lesenda Ragnar Bragason og getur bent honum á þennan möguleika?
Þetta er aljgörlega frábær hugmynd! Ég hef lengi beðið eftir endurkomu Þórs og Danna. Las reyndar í vetur að Þráinn ætlaði að gera lokamynd um þetta magnaða tvíeyki.
SvaraEyðaKv. Elmar Ernir
Algjörlega sammála mínum verri helming. Þetta er brilliant hugmynd hjá þér Charlie. X-Kalli
SvaraEyðathad væri thá ekki til annars en ad bæta seríuna um vaktirnar... thví snillingarnir úr lífs-myndunum gætu aldrei gert neitt efni leidinlegt:) reyndar finnst mér nóg komid um Georg og félaga en er alveg til í meira um Thór og Daníel:) bestu kvedjur á klakann frá Bergen, Stebba:)
SvaraEyða