Lyfjakúrinn verkaði ekki á mig. Ég fór til læknis. Þetta er ekki sinaskeiðabólga sem er að plaga mig, heldur eitthvað annað. Eitthvað með bjúgmyndun og klemmdar taugar, sennilega. Ég á að sofa með teygjubindi og forðast átök á næstunni. Það var eins gott að ég valdi í þessari viku að taka starfi sem mér bauðst þar sem ekki reynir verulega á líkamann. En málningarvinnan er ekki það besta fyrir hendurnar, sérstakelga ekki spartslvinnan sem ég hef verið í síðustu fjóra daga. En sem sagt, læknirinn vísaði mér á handaskurðlækni sem mun hitta mig og gera á mér eitthvert taugaleiðnipróf eða taugavirknipróf (man ekki hvað hann kallaði það) og e.t.v. skera í hendurnar á mér til að laga þetta. Læknirnn taldi að þess þyrfti alla vega einhvertíma. Að ég slyppi ekkert við það.
Det er nu det.
Ég hef alltaf vitað þetta Kalli minn, það er fínt í þér þó stór sért. Þú er eins og mamma þín, átt að sitja við bóklestur og bróderí.
SvaraEyðaÉg er einmitt að fara að hitta taugaskurðlækni út af bakinu fljótlega. Þetta eru "góðu" genin að austan, allir með gigt ;)
SvaraEyða