fimmtudagur, maí 1

Hver er Víkarinn (önnur vísbending)?

Þessi fyrrum hafsent í meistaraflokki UMFB í fótbolta skokkaði alla jafna fram völlinn þegar færi gafst að kasta boltanum langt inn á vítateig mótherjanna. Þetta var einhverntíma á árunum eftir 1980. Kannski 81 og 82 - eitthvað svoleiðis. Annars er þessi Víkari ekki þekktur fyrir fótbolta. Nokkrir honum skyldir eru það hins vegar.

Hann spilar á gítar og hefur, eins og hann á kyn til í báðar ættir, gaman af því að syngja. En hann spilar líklegast ekkert fyrir aðra en sjálfan sig. Þegar hann kemur vestur veit ég að hann tekur oftast lagið með einum frænda sínum þar, einum alhressasta Víkaranum. Meirihluti Bolvíkinga eru skyldir þessum umrædda manni.

Hann átti stórafmæli snemma á þessu ári.

6 ummæli:

  1. Nafnlaus1:32 f.h.

    Jónsi ???

    KJ

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:25 f.h.

    Sæll Kalli frændi...
    Ég ætla að giska á hann stórfrænda minn Steina Karvels
    kv.
    Martha Kristín

    SvaraEyða
  3. Kristján Jón Guðmundsson

    SvaraEyða
  4. Yes Martha Krisín!
    Þetta var enginn annar en Steini Karvels.

    Gamað að fá svona nýja þátttakendur í leikinn Martha og Höddi.

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus8:22 e.h.

    Laglegt :) Alltaf gaman að kíkja á þessa síðu, en ég læt svarið ekki frá mér nema vera viss :)
    Martha Kristín

    SvaraEyða