þriðjudagur, desember 11

Hver er Víkarinn?

1. vísbending

Ég hitti Víkara í dag. Konu. Ég var að versla, hún var að vinna. Ég kannaðist við hana og hún kannaðist við mig. Hvorugt mundum við þó nafn hins á því augnabliki sem við stóðum þarna. En ættarmótið (eins og það heitir örugglega) leynir sér ekki í henni. Ég vissi vel hver hún var. Ég man eftir henni þegar ég var púki. Hún á hóp systkina en ekkert þeirra býr lengur í Bolungavík.

Hver er Víkarinn?

6 ummæli:

  1. Nafnlaus9:33 e.h.

    Varstu í Stóru-Víkinni eða hvað??

    SvaraEyða
  2. Nei, ég skrapp bara í kaupstað.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus12:56 e.h.

    Laufey Karlsdóttir

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus12:57 e.h.

    Beggi býr enn heima, við þurfum aðra vísbendingu.

    SvaraEyða
  5. Ég hefði nú munað eftir nafni Laufeyjar. Hún var samstarfsmaður minn í Grundaskóla í 4 vetur.

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus11:28 f.h.

    Sæll Kalli, les oft bloggin þín en hef aldrei commentað.
    Er þetta nokkuð Kristrún Jóns málara.
    Sólveig S.

    SvaraEyða