mánudagur, október 22

Hver er Víkarinn?

Það urðu fleiri Víkarar á vegi mínum um helgina. Einn hitti ég í Smárabíói. Þann Víkara kannast ég nú ágætlega við. Hann hefur ekki búið í Víkinni lengi, lengi en er alinn þar upp og kemur oft í heimsókn. Við eigum börn á líkum aldri. Hann er hins vegar aðeins eldri en ég en á systur sem er jafngömul mér og líka tvö önnur systkini sem eru eilítið eldri en hann sjálfur.
Hver er Víkarinn?

Dóra systir má ekki taka þátt. Hún var með mér þegar ég hitti þennan Víkara.

5 ummæli:

  1. Nafnlaus9:08 f.h.

    Er þetta líkamræktarfrömuðurinn og sjónvarpströllið Halldór Daðason

    SvaraEyða
  2. Nei, enda á hann fleiri en tvö systkini sem eru eldri en hann. En þessi er jafngamall honum held ég örugglega.

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus8:11 e.h.

    Ég ætla að segja bróðir Ásu Magnúsar, man samt ekki hvað hann heitir.

    SvaraEyða
  4. Nei ekki er þetta Jónsi Veigu.

    SvaraEyða