laugardagur, maí 26

Upptökudagur


Þetta er upptökudagurinn hjá mér. Ég er búinn að sitja við í ellefu klukkutíma og spila inn parta og hljóðblanda.
Það er búið að vera skemmtilegt og mér hefur miðað sæmilega en þó á ég nokkuð mikið eftir. Mig langaði heim um miðjan dag til þess að borða en ég gat ómögulega slitið mig frá þessu. En nú þola eyrun ekki meira í dag. Ég er farinn heim.

1 ummæli:

  1. Nafnlaus8:25 f.h.

    Þessa dagana eru flestir dagar upptökudagar hjá okkur Gunna;o)

    Það væri ekki verra að hafa þig með í þessum pælingum svo ég tali nú ekki um spilamennsku.

    Þetta er tímafrekt og getur tekið á, en á hinn bóginn er þetta ótrúlega skemmtilegt og maður lærir alveg helling á þessu.

    Gangi þér vel Kalli minn!

    Heiðrún

    SvaraEyða