miðvikudagur, desember 27

Gettu betur


Í gærkvöldi var spilað á Holtastígnum. Í hitteðfyrra vorum við líka hérna í Víkinni um jól og þá var spilað heima hjá mömmu og pabba. Í þetta skiptið fórum við Gréta í næsta hús og spiluðum við Önnu Svandísi, Atla Frey, Danna, Írisi og Kristján Jóns. Nú var það þessi frábæri leikur Gettu betur sem var á spilaborðinu. Mikið ofboðslega finnst mér þetta skemmtilegt. Þetta er gríðarlega vel heppnað spil hjá þeim Gunnari Sturlu og Trausta. Og spurningar Illuga eru góðar. Ég vona bara að Veruleiki, fyrirtækið sem stóð að þessari útgáfu spilsins, muni fljótlega koma með nýjar spurningar á markaðinn. Ég myndi kaupa nokkra pakka.

Gunni, þú kemur þessu áleiðis.

2 ummæli:

  1. Nafnlaus9:23 f.h.

    Sæl Kalli minn

    Það er gaman að heyra að þú nýtir jólin á uppbyggilegan hátt. Ég hef nú þegar komið þessu til skila. Þessi beiðni féll í góðan jarðveg hjá blaðamanninum.

    Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist.

    Þú ert alveg ótrúlega duglegur að skrifa hérna og gaman að lesa það sem kemst hér "á blað".´Ég er hins vegar latur að leggja comments inn á svona síður, konan hefur horn í síðu mér út af þessu. Ég ætla nú ekki að lofa neinu en hef hug á að bæta mig.

    Kær hveðja,
    Gunnar Sturla

    SvaraEyða