Ég var að ganga í Tónmenntakennarafélagið. Ég var að kynna nýja diskinn á aðalfundi félagsins og skráði mig í félagið í leiðinni. Það er um að gera að koma sér í samband við fólkið í faginu sem hefur meiri reynslu á þessu sviði en ég. Kynningunni var ágætlega tekið. Ég vona að hún verði til þess að hreyfa við einhverjum og þeir fari að fást óhræddir við upptökur í starfi sínu í skólunum.
Þú hefur þá ekki skráð mig úr því í leiðinni? ;o)
SvaraEyðaEn frábært að þú skráðir þig....ég þarf að gera slíkt hið sama hérna úti í Danmörku!!
Ertu að kenna 1. bekk og upp úr eða?
jább!
SvaraEyðaÁ leikskólanum hennar Andreu er alveg frábær tónmenntakennari. Hún var t.d. að sýna okkur foreldrunum fullt af trommum sem að hún keypti í Hljóðfærahúsinu, algjör snilld. Tromma sem myndar sjávarhljóð, draugahljóð og fleira.
SvaraEyðaMér finnst alveg frábært að það sé komin kennsla í leikskólana, þau eru meiri að segja í kór síðasta árið sitt á leikskólanum.
Sæll Kalli, Ég er nú bara að kvitta fyrir mig, kem hér nokkuð reglulega og les skemmtilegu færslurnar þínar.
SvaraEyðaAfmæli í Grundaskóla í gær og mikið fjör og mikið gaman.
Bestu kveðjur