þriðjudagur, október 24

Gubb og dans


Voðalega slappur
Originally uploaded by wwwkarl.blogspot.com.
Perla María er farin í leikskólann og Hákon í tíma í 4.- og 5. bekk. Gréta er inni í skúr að vinna - það dynja á okkur hamarshöggin og högg úr heftibyssunni. Hún er greinilega að berja saman blindramma og strekkja á þá striga. Við Hringur erum hérna frammi á ganginum að ná okkur niður eftir hamaganginn sem fylgir því að koma Perlu Maríu og Hákoni af stað í skólana. Ég var að ganga frá í eldhúsinu og setja þvottavélina af stað.

Hringur er búinn að vera lasinn í nótt og í morgun. Hann er með ælupest. Nú liggur hann með sleikjó í sófanum og hreyfir hvorki legg né lið. Alveg búinn á því eftir síðusta krampa. Ég ætla að vera heima með honum í dag.

Eldri krakkarnir munu sýna dans seinna í dag. Það er að ljúka dansnámskeiði sem þau hafa sótt síðustu vikurnar. Ég missi af því.

2 ummæli:

  1. Æi, greyið Hringur, vonandi gengur þetta hratt yfir.

    Eru þeir ekki ferlega líkir bræðurnir? Ég hvet þig til þess að finna mynd af Hákoni þegar að hann var á aldri við Hring svo að við getum borið þá saman;o)

    SvaraEyða
  2. Þeir eru nánast eins.

    SvaraEyða