laugardagur, maí 6

Gula húsið?

Ég sá á BB síðunni að Bæjarmálafélagið í Bolungavík var með einhverja dagskrá í Gula húsinu. Nú verða bolískir lesendur þessarar síðu að upplýsa mig um hvaða hús gengur undir nafninu Gula húsið.

Og þeir mega líka henda kommentum inn á færslurnar hér að neðan. Þetta lítur svo aumingjalega út þegar enginn bregst við.

5 ummæli:

  1. Nafnlaus4:13 e.h.

    Sæll frændi.
    Ég var einmitt að spá í hvaða hús þetta væri. Er svo heppin að mamma situr hjá mér og hún segir að þetta sé Gestahúsið.
    Bið að heilsa í sveitina.
    Kveðja, Anna Svandís

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus6:03 e.h.

    Held að þetta eigi við nýja hlutan af JFE húsinu . . . samt ekki viss.
    Kv. Ró

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus6:10 e.h.

    Hvenær fórst þú síðast suður Kalli minn!

    SvaraEyða
  4. Já, ég þekki JFE húsið. Nú skil ég.

    SvaraEyða